80´s

Velkomin til manna

07.02.2010 00:16:06 / eydisein

Pappi, kassi, pappakassi, plast, bóluplast, rúlluplast...

Thad er enn snjór hérna og heyrst hefur ad sá hinn sami eigi ad vera fram ad páskum. Veit svo sem ekki hvort ad sá ordrómur sé sannur. Fjördurinn er thví midur ekki lengur allur frosinn enda búid ad hlyna hérna talsvert sídasta mánudinn. Eins og hann var nú fallegur svona ísilagdur. Hitinn er vid frostmark en thó er enn frekar kalt.

Pappakassar taka hug minn allan thessa dagana sem og bóluplast, plastpokar, límband og annars konar plast. Einnig hvernig rada eigi í kassa og hvernig ekki eigi ad rada í kassa. Their mega ekki vera of thungir en verda samt sem ádur ad vera fullir, pakka brothættu vel inn, ganga vel frá vidkvæmum og andlega dyrmætum hlutum... blablabla.

Annars er mér bodid í hádegismat á morgun. Alltaf gaman ad vera bodid eitthvert :)

Kv sú pakksadda



» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2010 18:55:10 / eydisein

Viborg

Fór til Viborgar í dag. Ég fór thví midur ekki á theim tíma sem ég venjulega fór alltaf á og hitti thar af leidandi enga af mínum fyrrverandi samferdalöngum. Thad er gaman ad segja frá thví en vid vorum allnokkur sem fórum á sama tíma med rútunni á hverjum degi til Viborgar. Madur var farin ad thekkja thá og sumir budu gódan daginn. Allir áttu sín sæti, meira eda minna og mér fannst thetta notalegt. Heimleidin seinnipartinn var eilítid ödruvísi, thar sem fólk fór á misjöfnum tímum heim. En thad var yfirleitt einhver á theirri leid sem madur kannadist vid. Thad kom meira ad segja eitt sinn fyrir ad rútan kom ekki og vid vorum fjögur sem fórum saman í leigubíl til Viborgar - á kostnad rútufélagsins ad sjálfsögdu. Madur thekkti thau en thekkti thau samt ekki. Thad tíndist eitthvad úr hópnum og nyjir komu inn í stadinn enda tvö og hálft ár dágódur tími.

En agalega var annars fallegt á leidinni. Allt hvítt og slétt, trén hrímud og sólin skein í öllu sínu veldi. Varla hægt ad bidja um fallegra vedur. Hefdi helst viljad stoppa bílstjórann og hlaupa út og taka myndir í gríd og erg - thad hefdi sennilega ekki verid vel séd.

Thad var eilítil thoka í Viborg og mjög kalt en thad var ædislegt ad labba og endurupplifa sídastlidin ár :) Gerdi allt sem ég ætladi mér og meira til. Hitti fyrrverandi kennara mína, gekk nidur ad vatninu og tók myndir og sá meira ad segja Kjóla Óla í allri sinni dyrd ;) Nádi svo strætó klukkan hálf fimm og var komin heim í myrkri. Gódur dagur.

Bid ad heilsa Eydís


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2010 23:52:21 / eydisein

Punktablogg

Ég ætla ad hafa bloggid ad thessu sinni svona nokkurs konar punktablogg. Taka thad sem er efst í huga mér um thessar mundir og setja thad nidur á blad:

Er ad verda hundleid á thessu interneti hérna. Thad hagar sér eins og ofdekradur krakki sem engu hlydir. Ég hélt í fáfrædi minni ad thegar madur borgadi ágætis upphæd fyrir internettengingu thá ætti hún ad vera stödug en ekki síflakkandi inn og út. (En svei mér, sem gerir ekkert í thessu - ég gæti verid búin ad hringja og rífast og skammast... kannski ekki alveg ég thó)


Handboltinn er audvitad ofarlega á lista hérna eins og á ödrum íslenskum heimilum thessa dagana og eru dagsverkin skipulögd eftir honum. Ekkert vit í ödru. Thar sem ég er ekki med stödina TV2, thar sem leikirnir eru syndir hérna í Danmörku, horfi ég bara á thá í gegnum ruv.is og heyri Adolf öskra úr sér lungun í öllum æsingnum.
Thad versta er thó ad ég er svo tapsár thegar kemur ad svona thjódaríthróttum ad ég á frekar erfitt med mig. Enda var thjódarstoltid afskaplega stórt og mikid eftir leikinn á laugardaginn :klikk:

Rúmar thrjár vikur í Ísland! Verdur indælt ad koma heim, sérstaklega eftir einveruna sídustu vikur en madur á sennilega eftir ad sakna margs hédan. Ég á thó pottthétt ekki eftir ad sakna matarins og hlakka ég afskaplega mikid til ad fá gott braud, kindakjöt, fisk, ceerios, jógúrt og ymislegt fleira gódgæti á hverjum degi ef mér thóknast svo


Mikid ad gera hjá mér thessa vikuna eins og fram kom í sídustu færslu og vid bættist svo aukatími í bólstruninni - sem er bara gott, ég verd jú ad ná ad klára Thann litla ádur en ég yfirgef svædid 


Punktur




» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2010 00:11:37 / eydisein

Blogg

Menn heimta blogg og thví er audvitad hlítt!

Eins og glöggir lesendur hafa kannski tekid eftir á ég ad vera í óda önn ad pakka nidur en er í raun ad gera minnst af thví. Ég er theim mun meira ad spóka mig nidri í bæ á útsölum, enda heldur meira fjör í thví, ekki satt? ;)

Stefnan er svo sett á Viborg í vikunni, smá túristaferd, ef svo má kallast. Ætla bara ad fara og kíkja á bæinn, setjast inn á Morville í heitt súkkuladi og horfa á alla sætu thjónana, labba göngugöturnar, kannski sé ég Kjóla-Óla, kíkja í einstaka búdir og bara hafa thad í alla stadi afskaplega nádugt.
Og planid fyrir næstu viku er tískusyning og heimsókn á ódalssetur... ég hef í rauninni engan tíma til ad pakka!


Annars er ótrúlega mikid sem tharf ad gera thegar madur stendur í svona flutningum. Útfylla hitt og thetta, segja upp hinu og segja upp thessu, skrá sig inn hér og út hér, panta eitt og afpanta annad, ákveda hvada fyrirtæki madur vill skipta vid og hvenær og hvernig og hvers vegna... thetta er endalaust! En thetta kemur allt med kalda vatninu 8)

Vi ses
Eydís


P.s. ég er búin ad fjárfesta í eitt stykki peru, thannig ad nú sé ég :p


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2010 20:37:23 / eydisein

Í dagsins önn

Nokkrar stadreyndir svona í lok dagsins:

Thad er allt morandi í útsölum nidri í bæ. Thá er gaman.
Thad vantar peru inn á badherbergi. Ég sé ekki spönn frá rassi thar inni.
Ég tharf brádum ad byrja ad pakka. Brádum.
Ég tholi ekki auglysingahléin í sjónvarpinu. Best ad slökkva bara á thví.
Thad er mjög kalt úti.
Mig langar afskaplega mikid í popp. Núna.
Ég tharf ad fara í klippingu.
Ég ætla á kaffihús á morgun. Vonandi eiga their góda köku til.

Kær kvedja
Eydís



» 3 hafa sagt sína skoðun

09.01.2010 22:03:48 / eydisein

Danmörk á nyjan leik

Janúar er mættur til leiks og thá er veturinn fyrir alvöru hafinn. Snjór og 11 grádu frost mætti mín er ég rak fótinn út úr flugvél íslenska flotans í gærkveldi. Mikid var annars yndislegt ad thurfa ekki til Køben, bara beint flug til Álaborgar. Ég tók strætó í bæinn enda klárlega eina farartækid med viti. Gekk svo eins hrödum skrefum heim og ég komst í snjó og slabbi med hálftóma ferdatösku á hjólum í eftirdragi. Kom vid hjá kaupmanninum á horninu og thegar ég seildist inn í kælinn eftir mjólkurlítra hlynadi mér örlítid á hendinni enda 5 grádur í kælum almennt! Íbúdin tók á móti mér hrein og tær og afskaplega köld. En thad tók ekki langan tíma ad hita hana upp.

Fór svo í göngutúr í dag ásamt bleika fáknum í blídskaparvedri. Thad var adeins hlyrra en í gær, eitthvad um -6 grádur. Gekk nidur ad firdinum sem er frosinn um thessar mundir - mjög falleg sjón. Langadi mest ad stökkva út á og labba yfir.
Lét thad thó ógert í thetta skipti.


Bid ad heilsa í bili
Eydís


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2009 21:22:03 / eydisein

Gömul kynni og ny

Ég átti alveg frábæran dag med gömlum vinum sem komu langt ad, innanlands thó. Langt sídan sídast. Einstaklega gaman ad hitta thau, skoda sig um á útijólamarkadi, spássera um midbæinn, kíkja í heitt súkkuladi á kaffihúsi og borda góda máltíd á grískum veitingastad... ég tharf sennilega ekki ad borda fyrr en ég kem til Íslands. Tala um alla heima og geima, bædi á léttum og meiri alvarlegri nótum. Grínast og hlæja. Svona eiga helgarnar ad vera :d

Sæl ad sinni
Eydís


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2009 14:57:37 / eydisein

Nægur tími

Tíminn flygur áfram! Kominn 10. desember, einungis tvær vikur til jóla og ég ekki komin í mikid jólaskap. Thad er svo sem allt í lagi, nægur tími til stefnu ;) Thad er líka lítid jólavedur hér, rigning og gráleitt yfir ad líta.

Ætli madur komist ekki í jólaskapid thegar madur kemur heim og hittir allt fólkid sitt, byrjar ad skreyta fyrir alvöru og smakka til smákökurnar ;) Annars á ég bara eftir ad skrifa á jólakortin og pakka nidur, thá er ég tilbúin. Já og thrífa íbúdina audvitad. Ætli madur geri thad ekki um helgina ásamt thví ad jappla á OBAL sem ég keypti í Tiger :d


Kv Eydís



» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2009 17:25:14 / eydisein

Bækur

Ég var ad hugsa í dag um nokkrar af mínum uppáhalds bókum. Ég verd thó ad vera hreinskilin og segja ad ég er sennilega ad gleyma heilum hellingi en ég get alltaf bætt vid thegar minnid kemur til baka ;) Thetta er nidurstadan eftir fyrstu íhugun og rödin skiptir ekki máli:
  • Karítas án titils - Kristín Marja Baldursdóttir
  • Óreida á striga - Kristín Marja Baldursdóttir
  • Hús úr húsi - Kristín Marja Baldursdóttir
  • Mávahlátur - Kristín Marja Baldursdóttir
  • Láru bækurnar - Laura Ingalls
  • Sossubækurnar - Magnea frá Kleifum
  • Dalalíf - Gudrún frá Lundi
  • Tengdadóttirin - Gudrún frá Lundi
  • Bíbí - Vigdís Grímsdóttir
  • Reisubók Gudrídar Símonardóttur - Steinunn Jóhannesdóttir
  • Aylu bækurnar - Jean M. Auel
  • Rayu bækurnar -
Thad sem er skemmtilegt vid thennan lista er ad höfundarnir eru eingöngu konur. Thad er ekki einn einasti karlmadur á listanum! En thegar ég fer ad hugsa um thad kæmist Djöflaeyjan kannski á listann og er hún eftir Einar Kárason, einnig bók sem heitir Thorpid sem svaf en ég man thví midur ekki eftir hvern hún er.

Sögurnar eiga thad allar sameiginlegt ad gerast fyrr á tímum og er thad ekkert skrytid, thar sem mér finnst skemmtilegast ad lesa um thad sem gerdist í gamla daga.

En ég veit vel hvers vegna thad eru eingöngu konur á listanum. Ekki af thví ad ég er raudsokka, thví thad er ég svo sannarlega ekki, heldur vegna thess ad oftast finnst mér konur hafa skemmtilegri og betri ritstíl en karlar. Konur lysa hlutum oft betur og smátridin fá ad njóta sín. Thegar ég les bækur er thad ekki bara sagan sjálf sem heillar heldur líka frásagnarstílinn, hann verdur ad vera gódur til ad bókin komist á listann.
 
Ég á mér mína uppáhalds höfunda og ég get lesid sumar bækur aftur og aftur. Thó ég thekki söguna út og inn er alltaf gaman ad heilsa aftur upp á sögupersónurnar. Thad eru thó svo margar bækur sem mig langar ad lesa og margar bækur sem ég veit ekki um en eru örugglega mjög gódar :s Já lífid getur verid erfitt.



Kv bókaormurinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2009 12:03:47 / eydisein

Markadur

Thad er kominn desember og enn bólar ekkert á thessum snjó sem ég var ad vonast eftir. Ég skil hreint ekki fólk sem vill ekki hafa snjó. Er thad bleytan og slabbid? Eda hálkan? Ófærdin? Ad thurfa ad skafa? Mér finnst thetta bara kósy. Ég saknadi hans virkilega í fyrra vetur en sá vard langur og grár. Vedráttan var eins í heila 5 mánudi!

Ég ætla ad skella mér á markad á morgun, hérna í útjadri Álaborgar. Hann er einungis haldin thrjár helgar á ári. Hef aldrei farid á hann ádur en vona ad thar sé hægt ad finna eitthvad fínt og fallegt :)
Annars hefdi ég verid til í ad fara á stóra útimarkadinn í Viborg, sem haldin er ad mig minnir í september. Thar ægir öllu saman, hestum, hundum, styttum og hjólum, leirtaui, fatnadi og matvælum, svo fátt eitt sé nefnt. Allt undir berum himni, á stóru túni. Afskaplega skemmtilegt ad spranga thar um med pylsu í annarri, skodandi dót og klappandi risavöxnum dráttarklárum.
Ég hefdi líka verid til í ad fara á Husflidsmessen sem er einnig í Viborg og inniheldur allt sem vidkemur handavinnu, garn, efni, bækur, listaverk, kynning á skólum og námskeidum og margt, margt fleira. Thad er thó ekkert gaman ad fara thangad nema madur eigi smá aur í buddunni thví madur sér alltaf eitthvad thar sem manni langar í ;)


Kær kvedja markadsmærin



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2009 10:38:35 / eydisein

Fyrsti í adventu

Fyrsti í adventu er ad thessu sinni í nóvember og finnst mér thad alltaf hálf einkennilegt thar sem mér finnst adventan einkennast vid desember. Og yfir höfud bara allt jólastúss. En ekki misskilja mig, ég skil thó fullvel hvers vegna fjórdi sunnudagur fyrir jól er oftar en ekki í nóvember ;)

Í dag mun adventuljósid vera sett út í glugga, jólalögin verda vígd og kannski nokkur jólakort búin til. Annars er nægur tími til stefnu, ekkert gaman ad vera búin med allt í byrjun desembers ;)

Annars er thetta heldur ólíkt adventunni í fyrra, thar sem ég var á fullu í lokaverkefninu og Örn ad drukkna í yfirvinnu. Thá var lítid verid ad hugsa um jólin, jólagjafirnar vel skipulagdar fyrirfram og ekkert búdarráp. Bara inn, borga, fara. Engar smákökur bakadar né lagtertur gerdar (ekki ad ég ætli heldur ad fara ad baka fyrir mig eina núna). En eitt er thó á hreinu ad í ár verdur gert eftrirfarandi á adventunni, sem og fyrri ár:
  • Horfa á Love Actually (algjört must!)
  • Fara nidur í bæ, dást ad jólaljósunum og kaupa brenndar möndlur. Mmmm
  • Kaupa jólagjafir (afganginn af theim)
  • Skreyta íbúdina (med thví litla sem ég á + adventuljósinu mínu nyja :))
  • Gera jólahreingerningu (hef reyndar ekki haft tíma fyrir róttækar jólahreingerningar sídustu árin)
  • Hlusta á jólalög
  • Skrifa jólakort og pakka inn jólagjöfum
  • Ef ég væri á Höfn myndi ég fara á adventukvöld med mömmu, Karlakórstónleikana og fleiri skemmtilega vidburdi sem helgadir eru jólunum
Thannig ad ég á skemmtilega tíma í vændum fram ad jólum sem eiga eflaust eftir ad lída ansi hratt. Svo eru bara rúmar tvær vikur í Ísland, jibby :haha:

Kvedja Eydís



» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2009 17:08:38 / eydisein

Vedurfregnir

Thad var ædislegt vedur í dag. Fyrripartinn. Sólin skein og ekki sky á himni, 10 stiga hiti á mælinum. Og allt var hreint út sagt svo tært, virkilega fallegt vedur. Thad er búid ad vera grátt og thungbúid sídan í september, kemur einstöku sinnum gódur dagur eins og í dag og madur nytti hann ad sjálfsögdu utandyra :d

Ætla bara ad hafa thad rólegt í kvöld med sjálfri mér og vonandi kemur einhver gód mynd í sjónvarpinu. Plííís EKKI Steven Seagal eda Van Damme. Thad hlytur ad vera búid ad vera eitthvad blessad thema hérna sídaslidinn mánud med theim og thetta er ekki mitt uppáhald, hvorki leikaranir né innihaldid í myndunum:!:




Enda thetta med einni  mynd af kappanum Steven Seagal. Hér sjáidi hvad ég hef mátt thola 8|

Kvedja 80´s



» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2009 15:50:14 / eydisein

Jólahvad?

Ég keypti mitt fyrsta adventuljós í gær. Hvítt úr tré... og thad er ekkert meira um thad ad segja.

Thad rignir hérna í Álaborg í dag. Mikid. Ætladi út ad leika mér med myndavélina en eins og vedrid er búid ad vera sídustu daga er lítid myndavélafæri. Súrt!

Thad er annars mikid búid ad skreyta hérna nidri í bæ og thad er meira ad segja dálítill tími sídan. Og thad sem meira er, thad er mánudur sídan ad jóladót kom í búdir, litlar jólasveinastyttur, seríur, piparkökur, jóla jóla jóla! Man bara ekki eftir thví ad thetta hafi nokkru sinni verid svona snemma en kannski er ég bara gleymin. Mér finnst thó einhvern veginn eins og ad thad eigi ad vera komin desember ef marka má "jólastemmninguna" nidri í bæ.

Vona samt ennthá ad ég verdi bænheyrd og fái dulítinn snjó... thad er bara svo kósí ;)

Hilsen Eydís




» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2009 13:52:57 / eydisein

Breytingar

Ég er aftur ordin veik! Já og thad er ömurlegt! Thad getur hafa verid Örn sem hefur smitad mig, thví hann er búinn ad vera med einhverja pest eda ad mér hefur kannski bara ordid kalt og fengid kvef. Hvort sem er, er ég ordin hundleid á thessum veikindum. :frown:

Vid ætludum annars thessa helgina á stóra innanhúss-syningu hérna í Aalborg Hallen. Hugmyndir og ymislegt skemmtilegt til ad innrétta hús og íbúdir - eitthvad sem lofar gódu! Veit ekki hvort ég kemst á morgun, ætla ad sjá til hvernig heilsan verdur. Thad yrdi thó frekar fúlt ad missa af thessu, thar sem ég var búin ad hlakka mikid til og hafdi meira ad segja komist yfir frímida. :s

Annars var verid ad gera róttækar framkvæmdir á bókasafninu hérna nidri í bæ. Ég í sakleysi mínu fór thangad fyrr í vikunni og ætladi ad skila bók sem ég hafdi fengid ad láni. Ég tek ekki eftir neinu thegar ég geng inn um adaldyrnar og thad er ekki fyrr en ég er komin í deildina sem ég er vön ad fara, ad ég tek eftir ad ég stend í gjörsamlega nyjum vistaverum! Ég vanamanneskja mikla, missti hökuna nidur í bringu og stardi á herlegheitin. Fór til baka ad adalinnganginum og sá ad thad var líka búid ad breyta öllu thar! Sjæsen. Thad endadi med ad ég thurfti ad fá hjálp vid ad finna thad sem ég var ad leita ad, eftir ad hafa reynt ad stauta mig fram úr korti yfir nyju vistaverurnar. Ég yfirgaf svo bókasafnid hálf midur mín yfir öllum thessum breytingum sem átt hafa sér stad á bak vid mig.

Ég kom svo heim, badandi út öllum öngum og brokkadi mig yfir thessari ósvífnu framkomu af hálfu bæjaryfirvalda sem syndi sig í breyttu bókasafni. Betri helmingurinn sem tekur breytingum mun betur en ymsir adrir, svaradi med mikilli yfirvegun en smávegis tilhlökkun í röddinni: "Thad væri gaman ad fara og skoda thetta um helgina". Thar med var málid svo ad segja útrætt. :$

Ég bid ad heilsa
Sú vanafasta



» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2009 12:44:16 / eydisein

Sneen falder

Thad er alveg ad koma nóvember. Tíminn hefur lidid svo hratt hér ad undanförnu ad thegar ég snéri mér vid var október búinn!

Annars kemur jólabjórinn á föstudaginn, jibby jei :) Thad er árlegur vidburdur ad thegar jólabórinn frá Tuborg kemur út á markadinn, er mikid fjör og skemmtilegheit. Thetta er svo sem eins og gefur ad skilja, fyrir unga, hressa fólkid sem finnst gaman ad fá sér öllara. En thid hin megid líka alveg vera med ;) Thetta er frekar sérstakt hér í Álaborg thar sem Jomfrue Ane gatan er lítil mjó göngugata sem inniheldur eingöngu bari. Thangad flykkist svo mannskapurinn og myndast einstaklega skemmtileg stemmning. Froduvélar blása gervisnjó, hálfberar stelpur í jólasveinakjólum gefa jólasveinahúfur og allir eru kátir med bjórinn sinn.



Jólabjórinn frá Tuborg hefur glatt dönsk hjörtu sídan árid 1981 thegar hann sá fyrst dagsins ljós. J-dagurinn, eins og Danir kalla daginn sem Jólabjórinn kemur út, var fyrst haldinn midvikudaginn 14. október 1990 en hann var sídan færdur og hefdin vard annar midvikudag í nóvember. Thessari hefd var breytt árid 1999, thar sem J-dagurinn var færdur í fyrsta föstudag í nóvember. Thad var mest megnis vegna thess ad allt unga fólkid sem drakk thetta kvöld mætti ekki til kennslu daginn eftir. Árid 2009 var svo J-dagurinn færdur til sídasta föstudag í október. Thessi skemmtilegi vidburdur gengur líka undir nafninu "Når sneen falder".

Thannig klukkan 20:59 á föstudagskvöldid verdur svaka stud á okkur ásamt ödrum jólasveinum ;)

Kvedja Eydís


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  18  Alls: 16643
Klukkan