Jæja thá er madur komin til útlanda enn einu sinni! Kom til Álaborgar thann 8. eftir rúmlega 13 tíma ferdalag. Ég fékk thá ad fadma kærastann thad kvöldid en strax morguninn eftir var hann rokinn upp í skóla til ad læra undir próf. Hann hefur varla sést eftir thad.
Skólinn hjá mér er farinn hægt af stad og er í tímum á thridju-, midviku- og fimmtudögum, enn sem komid er. Hina dagana er heimanám eda kennslulausir dagar eda hvad madur á nú ad nefna thá.
Já ég er sem sagt komin út, langt frá góda mömmumat og öllu sem thví fylgir. Tengdapabbi spurdi mig ad thví ádur en ég fór út, hvort ég hefdi ekki haft thad gott um jólin. Játti ég thví, enda hafdi ég thad mjög svo gott. Hann spurdi mig thá hvort mér thætti betra ad borda á Íslandi en í Danmörku. Játti ég thví líka enda heilagur sannleikur. Já sagdi hann thá, thad sést!!!
Túlki thetta their sem vilja!
Kvedja sú sem sést